Miðvikudagur 1. október - Trumptíminn, hampur, heimsmálin, Alþingi, ónæmiskerfið og söngur
Miðvikudagur 1. október
Trumptíminn, hampur, heimsmálin, Alþingi, ónæmiskerfið og söngur
Við ræðum ástandið í Bandaríkjunum á miðvikudögum við Rauða borðið. Þá er Trumptíminn. Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúi, Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur og Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur ræða nýjustu tíðindi úr landi Trump og hvaða áhrif þau munu hafa. Athafnakonan Tóta Jónsdóttir er frumkvöðull í hamprækt á Íslandi. Hún leiðir Maríu Lilju í allan sannleika um þessa mögnuðu, forboðnu jurt sem er til svo margra hluta nytsamleg. Við ræðum við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um heimsmálin, ekki síst nýjustu vendingar Trump gagnvart Gaza og Úkraínu. Málþóf fékk falleinkunn á málþingi um starfshætti Alþingis. Að kalla úrræði til að stöðva eilífðarvél í ræðuflutningi kjarnorkuákvæði vekur aulahroll hjá lagaprófessor. Mörður Árnason fyrrum þingmaður og Indriði H Þorláksson, fyrrum skattstjóri ræða þingið í samtali við Björn Þorláks. Guðlaug María Bjarnadóttir, Súsanna Antonsdóttir halda fyrirlestur fyrir áhugasama um vanvirkni í ónæmiskerfi, sjúkdóm sem hrjáir fjölda fólks en fáir þekkja. Þær ræða við Maríu Lilju um heilsuna. Jóhann Helgason og Edda Borg koma að Rauða borðinu spjalla, spila og syngja í tilefni af nýrri sólóplötu Jóhanns og tónleikum með honum, Eddu og Gömmunum í Bæjarbíói.
Fleiri þættir af Rauða borðið
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026
- Rauða borðið 1. okt - Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi1. október 2026
- Rauða borðið 30. sept - Efnahagur, heimsmál, tíðnimeðferð, Svikasögur og kórar30. september 2026






