Rauða borðið 29. apríl: Blaðamenn, gervigreind, Trump, Hafró, bólusetningar og pílagrímar
Þriðjudagur 29. apríl
Blaðamenn, gervigreind, Trump, Hafró, bólusetningar og pílagrímar
Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélagsins ræðir harða gagnrýni á rekstur félagsins og veika stöðu blaðamennsku. Pólitísk afskipti af fréttamennsku, fjölmiðlastyrkir og fleira verður til umræðu í samtali hennar við Björn Þorláksson. Þórhallur Magnússon, rannsóknarprófessor og tónlistarmaður, sérfræðingur í skapandi gervigreindarfræðum, ræðir við Oddnýju Eir um hver muni eiga og stjórna gervigreindinni. Haraldur Sigurðsson jarðfræðingur hefur búið í Bandaríkjunum í rúma hálfa öld. Gunnar Smári hringir í hann og spyr hvernig honum líði í ríki Trump. Jón Kristjánsson fiskifræðingur hefur aldrei verið skeptískari á fiskveiðistjórnun og gengur svo langt að tala um hryðjuverk í því samhengi. Björn Þorláks ræðir við hann um stofna sem éta sjálfa sig og meint úrræða- og þjónustuleysi Hafró. Kristjana Hrönn Ásbjörnsdóttir, faraldsfræðingur við Háskóla Íslands, ræðir um bólusetningar og helstu áskoranir og deilur þeim tengdar við Oddnýju Eir. Ólafur Ingólfsson jarðfræðingur hefur gefið út bók um andlega vakningu sem hann varð fyrir þegar hann fór í ansi langan göngutúr. Einelti á vinnustað leiddi til þess að hann gekk 2.200 kílómetra.
Fleiri þættir af Rauða borðið
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026
- Rauða borðið 1. okt - Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi1. október 2026
- Rauða borðið 30. sept - Efnahagur, heimsmál, tíðnimeðferð, Svikasögur og kórar30. september 2026






