Rauða borðið - Brim, reynsluboltar, auðlindir, siðareglur, rektor, hin sagan, öryrkjar, þjóðmenning
Miðvikudagur 5. mars
Brim, reynsluboltar, auðlindir, siðareglur, rektor, hin sagan, öryrkjar, þjóðmenning
Haraldur Sigurðsson prófessor og doktor í jarðefnafræði ræðir frá Bandaríkjunum við Björn Þorláksson um hækkun yfirborð sjávar sem getur valdið stórskaða í skaðabrimi eins og síðustu daga. Fyrrum þingmennirrnir Ásmundur Friðriksson, Mörður Árnason og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir eru reynsluboltarnir að þessu sinni. Kristín Vala Ragnarsdóttir, sérfræðingur í sjálfbærni við Háskóla Íslands, prófessor emerita, segir okkur frá raunverulegum kostnaði hins blóðuga auðlindastríðs sem háð er í heiminum. Friðrik Þór Guðmundsson, blaðamaður til langs tíma, kennari og fræðimaður, ræðir siðareglur Blaðamannafélags Íslands og hvort eða að hve miklu leyti starfsreglur blaðamanna hafa áhrif á efnistök og áherslur fjölmiðla. Gunnar Smári heldur áfram að ræða við frambjóðendur til rektors Háskóla Íslands. Það er komið að Ingibjörgu Gunnarsdóttur, aðstoðarrektor vísinda og samfélags og prófessor í næringarfræði. Rakel Adolphsdóttir, fagstjóri hjá Kvennasögusafni Íslands segir okkur frá afmælishátíð þessa safns, sem geymir hina söguna. Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ ræðir landsáætlun í málefnum fatlaðra, lögfestingu réttindasamnings SÞ, inngildingu og átakið "fyrir okkur öll”. Árni Björnsson, þjóðháttafræðingur fer yfir uppruna íslenskrar þjóðmenningar og ræðir hefðir á Öskudegi við Maríu Lilju.
Fleiri þættir af Rauða borðið
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026
- Rauða borðið 1. okt - Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi1. október 2026
- Rauða borðið 30. sept - Efnahagur, heimsmál, tíðnimeðferð, Svikasögur og kórar30. september 2026






