Rauða borðið 20. feb - Trump, hjúkrun, próf, sjálfshatur, trans og tengslabylting

· Fréttir

Fimmtudagur 20. febrúar
Trump, hjúkrun, próf, sjálfshatur, trans og tengslabylting

Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur ræðir um áhrif Trump á Evrópu og alþjóðastjórnmálin við Gunnar Smára. Hann ræðir síðan við þær sem vilja verða formenn Félags hjúkrunarfræðinga um kjaramál, starfsaðstæður og heilbrigðiskerfið. Helga Rósa Másdóttir, Jórunn Ósk Frímannsdóttir Jensen og Hulda Björg Óladóttir koma að Rauða borðinu. Björn Þorláks hringir í Þorlák Axel Jónsson, kennara við Háskólann á Akureyri, sem minnir á að samræmd próf voru tekin upp til að vinna gegn stéttaskiptingu. Inga Sigrún Atladóttir, kennari, skólastjórnandi, guðfræðingur, rithöfundur ræðir við Oddnýju Eir um aðgerðir gegn því sjálfshatri sem börn virðast þróa með sér innan skólakerfisins. Arna Magnea Danks ræðir við Oddnýju Eir um áframhaldandi útrýmingu trans fólks og setur í samhengi við almenna mannréttindabaráttu Ólafur Grétar Gunnarsson fjölskyldu- og hjónaráðgjafi segir Gunnari Smára frá tengslabyltingu karlmanna, lakari kvenheilsu og álagi á barnafjölskyldur.

Rauða borðið

Úr hlaðvarpinu

Rauða borðið

Gunnar Smári Egilsson

Allir þættir

Fleiri þættir af Rauða borðið