Rauða borðið 17. febrúar: Ræstingar, fjölmiðlar misbeiting valds, Heim og pólitík

· Fréttir

Mánudagur 17. febrúar
Ræstingar, fjölmiðlar misbeiting valds, Heim og pólitík

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar lýsir fyrir Gunnar Smára hvernig ræstingarfyrirtæki hafa grafið undan lífskjörum ræstingakvenna og í ofan á lag haft af þeim umsamdar kjarabætur. Hiti varð í umræðunni við Rauða borðið vegna Moggans og innflytjendamála í dag þegar Valur Grettisson Heimildinni, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp Samstöðinni og Ólafur Arnarson DV, gestir Björns Þorlákssonar létu gamminn geisa í umræðu um fjölmiðla. Björn Leví Gunnarsson fyrrverandi þingmaður Pírata tekur stöðuna í stjórnmálunum, ræðir við Oddnýju Eir um misnotkun valds og óhjákvæmilega sprengingu. Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir leikskáld og Magnús Geir Þórðarson leikstjóri og leikhússtjóri segja frá Heim, nýju verki Hrafnhildar í leikstjórn Magnúsar í spjalli við Gunnar Smára. Vilhjálmur Bjarnason fyrrum þingmaður ræddi um daginn og veginn við Sigurjón Magnús Egilsson og sagði honum sögur.

Rauða borðið

Úr hlaðvarpinu

Rauða borðið

Gunnar Smári Egilsson

Allir þættir

Fleiri þættir af Rauða borðið