Rauða borðið 29. jan - Hagræðing, spilling, rasismi, reynsluboltar, samkeppni og klassíkin rokkar
Miðvikudagur 29. janúar
Hagræðing, spilling, rasismi, reynsluboltar, samkeppni og klassíkin rokkar
Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB og og Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur Visku bregðast við sparnaðartillögum Viðskiptaráðs og ræða hvatningu ríkisstjórnarinnar um hagræðingu. Benjamín Julian verkastjóri verðlagseftirlits Alþýðusambandsins fer yfir verð á matvörumarkaði og spáir í hvort samruni Prís og Nettó muni auka samkeppni. Elvar Örn Friðriksson, framkvæmdastjóri Verndarsjóðs Villtra Laxastofna og stuðningsmaður íbúalýðræðis í Seyðisfirði og Sigmundur Ernir Rúnarsson þingmaður ræða hvort spilling komi við sögu hjá þeim sem helst vilja sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Sóley Dröfn Davíðsdóttir, yfirsálfræðingur við Kvíðameðferðarstöðina ræðir um sálfræðilegar rætur rasisma. Reynsluboltarnir miðla af visku sinni í spjalli um allt mögulegt, menningu, þjóðmál, stjórnmál og hvað eina, í þetta sinn koma þær Elín Albertsdóttir, Soffía Karlsdóttir og Þórunn Sigurðardóttir. Tónlistarnemarnir Sól Björnsdóttir og Sóley Smáradóttir koma í Klassíkin rokkar og taka á móti Þórði Magnússyni tónskáldi og Þórunni Ósk Marinósdóttur víóluleikara í tilefni af nýjum fiðlukonsert Þórðar sem verður flumfluttur í Hörpu á morgun.
Fleiri þættir af Rauða borðið
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026
- Rauða borðið 1. okt - Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi1. október 2026
- Rauða borðið 30. sept - Efnahagur, heimsmál, tíðnimeðferð, Svikasögur og kórar30. september 2026






