Rauða borðið 16. des - Snjóflóð, Seyðisfjörður, ljóðadjamm, Gaza og niðurbrot verkalýðsfélaga
Mánudagur 16. desember
Snjóflóð, Seyðisfjörður, ljóðadjamm, Gaza og niðurbrot verkalýðsfélaga
Við hefjum leik á viðtali við Katrínu Oddsdóttur mannréttindalögmann sem berst gegn laxeldi á Seyðisfirði – að því er virðist í andstöðu við íslenskar ríkisstofnanir.
Hjónin Ólöf Þorvaldsdóttir og Logi Kristjánsson hafa skrifað bókina Fjall í fangið, sem fjallar um snjóflóðin í Neskaupstað en líka um samfélagið sem flóðin féllu á, sérstakt samfélag sem var mótað af völdum og áhrifum sósíalista.
Jón Þór Þorvaldsson, formaður félags atvinnuflugmanna, ræðir tilraunir flugfélaga til niðurbrots á verkalýðsfélögum og félagsleg undirboð og áhrif þess á kjör flugstétta og samfélagið allt. Við ræðum ástandið á Gaza viðMagneu Marínósdóttur alþjóðastjórnmálafræðing og Guðrúnu Margrétu Guðmundsdóttur, mannfræðing. Þær eru báðar sérfræðingar í málefnum Miðausturlanda. Að lokum koma ljóðskáldin Anton Helgi Jónsson, Halla Þórðardóttir og Þórunn Valdimarsdóttir og ræða um ljóðlistina, ljóðadjammið og leyfa okkur heyra lljóð úr nýútkomnum bókum sínum.
Fleiri þættir af Rauða borðið
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026
- Rauða borðið 1. okt - Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi1. október 2026
- Rauða borðið 30. sept - Efnahagur, heimsmál, tíðnimeðferð, Svikasögur og kórar30. september 2026






