Synir Egils 19. apríl - Sveitarstjórnir, skólamál og ESB
Sunnudagurinn 19. apríl
Synir Egils: Sveitarstjórnir, skólamál og ESB
Það verður gestkvæmt í Sonum Egils þennan sunnudaginn. Í fyrri hluta þáttarins, það er Vettvang dagsins, koma fjórar konur: Kolbrún Þorsteinsdóttir kennari, Eyrún Magnúsdóttir ritstjóri, Eva H. Önnudóttir prófessor og Sóley Tómasdóttir kynja- og fjölbreytileikaráðgjafi.
Í síðari hluta koma þingmennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson og Pawel Bartoszek. Þeir skiptast á skoðunum um Evrópusambandið og hvort við eigum erindi þangað eða ekki.
Í fyrri hlutanum verður örugglega eitthvað rætt um komandi kosningar, til sveitarstjórna og hvort við eigum að halda áfram viðræðum við ESB eða ekki. Menntamál og Inga Sæland munu örugglega verða til umræðu. Sem og ýmislegt annað.
Fleiri þættir af Rauða borðið
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026
- Rauða borðið 1. okt - Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi1. október 2026
- Rauða borðið 30. sept - Efnahagur, heimsmál, tíðnimeðferð, Svikasögur og kórar30. september 2026






