Rauða borðið 30. apríl - Stríðsástand, líf í hjólastól, reynsluboltar, borgarmálin og fyrirmyndir
Fimmtudagur 30. apríl
Stríðsástand, líf í hjólastól, reynsluboltar, borgarmálin og fyrirmyndir
Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, ræðir fyrst óöryggið í heiminum, alvarlegar afleiðingar Íransstríðsins, krísu Trump og fleira í samtali við Björn Þorláks. Víðir Þorsteinsson hefur verið í hjólastól frá 1980. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við hann og eiginkonu hans, Sigríði Sóleyju Friðjónsdóttur um lífið og tilveruna. Víðir Þorsteinsson hefur verið í hjólastól frá 1980. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við hann og eiginkonu hans, Sigríði Sóleyju Friðjónsdóttur um lífið og tilveruna. Nokkrir efstu fulltrúar Viðreisnar í Reykjavík ræða nokkur kosningamál og áherslur í samtali við Björn Þorláks. Davíð Sól Páls, Arna Magnea Danks og Chaiwe Sól Patiwa Drífudóttir eru öll kennarar í grunnskólum og hafa víðtæka reynslu í að koma til móts við börn með mismunandi bakgrunn og þarfir. Þau tala um skólastarfið, börnin, takmarkanir og áskoranir skólakerfisins í heild, og ekki síst um mikilvægi þess að börn hafi sterkar fyrirmyndir í skólastarfinu og samfélaginu öllu. Laufey Líndal Ólafsdóttir ræðir við þau í lok þáttar.
Fleiri þættir af Rauða borðið
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026
- Rauða borðið 1. okt - Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi1. október 2026
- Rauða borðið 30. sept - Efnahagur, heimsmál, tíðnimeðferð, Svikasögur og kórar30. september 2026






