Rauða borðið 12. maí - Viðskiptaráð, kæra Rúv, lögfræðispjall, skólakerfið, læsishrun og mjúkir menn
Þriðjudagur 12. maí
Viðskiptaráð, kæra á Rúv, lögfræðital, skólakerfið, læsishrun og mjúkir karlmenn
Gunnar Smári ræðir við Björn Brynjúlf Björnsson framkvæmdastjóra um stefnu og markmið Viðskiptaráðs, fyrirferð þess í samfélaginu og hverjum það þjónar. Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum hafa kært Rúv til Fjölmiðlanefndar. Árni Guðmundsson talsmaður samtakanna telur að Rúv stundi ólöglega auglýsingasölu. Þá ræðir Árni aðgengi barna og ungmenna að áfengi netsölufyrirtækja. Ragnheiður Stephensen kennari við Garðaskóla ræðir við Gunnar Smára um umræðuna um skólakerfið sem hefur orðið ákafari á undanförnum árum, kannski aldrei meiri en nú. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir við Björn Þorláks um lagaleg álitaefni, gjarnan tengd fréttum líðandi stundar. Kreditkort borgarstjóra, normalíseringu ofbeldis og fleiri álitamál ber á góma. Sigríður Ólafsdóttir dósent á menntavísindasviði Háskóla Íslands ræðir við Gunnar smára um læsi og lesskilning. Margir ungir karlmenn þurfa að nota Viagra í kynlífi segir Númi Snær Katrínarson nuddari og Crossfit þjálfari. Hann lýsir því fyrir Ásdísi Olsen hvernig hugvíkkandi efni hafa hjálpað honum að gefa eftir inn í mýktina og njóta lífsins.
Fleiri þættir af Rauða borðið
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026
- Rauða borðið 1. okt - Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi1. október 2026
- Rauða borðið 30. sept - Efnahagur, heimsmál, tíðnimeðferð, Svikasögur og kórar30. september 2026






