Rauða borðið 13. maí - Vinur, heimsmálin, kappræður, vond kjör, FÍB, Starmer og einhverfa
Miðvikudagur 13. maí
Vinur, heimsmálin, kappræður, vond kjör, FÍB, Starmer og einhverfa
Sævar Ciesielski var misnotaður af séra Georg í Landakotsskóla og síðan píndur, niðurlægður og útskúfaður af íslensku þjóðinni,“ segir vinur hans, Jón Ármann Steinsson, í viðtali við Ásdísi Olsen um nýja sjónvarpsþáttaröð um Geirfinnsmálið. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um ferð Trump til Kína og áhrif þessara ferðar á heimsmálin. Heimildin reið á vaðið með fyrstu kappræður allra oddvita í Reykjavík í beinni útsendingu úr Tjarnarbíói í gærkvöldi. Sara Stef Hildar, Björn Þorláks og Laufey Líndal skiptast á skoðunum um kappræðurnar, en þau fylgdust með sem áhorfendur úr sal. Kristín Heba Gísladóttir forstöðumaður Vörðu, rannsóknaseturs ASÍ og BSRB, ræðir rannsókn á kjörum launafólks sem sýnir mjög veika stöðu láglaunafólks, einstæðra foreldra og foreldra almennt. Sameining allra sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu myndi leiða til mestu samgönguúrbótanna. Þetta segir Runólfur Ólafsson hjá FÍB. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur ræðir um stöðu Keir Starmer við Gunnar Smára. Margrét Valdimarsdóttir, foreldri drengs með fötlun, segir að mikið vanti upp á að einhverfum dreng hennar sé sinnt sem skyldi. Óvissa með píanónám drengsins hennar bætist ofan á annað.
Fleiri þættir af Rauða borðið
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026
- Rauða borðið 1. okt - Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi1. október 2026
- Rauða borðið 30. sept - Efnahagur, heimsmál, tíðnimeðferð, Svikasögur og kórar30. september 2026






