Rauða borðið - Helgi-spjall: Jóhanna Jónasdóttir
Laugardagur 20. júní
Helgi-spjall: Jóhanna Jónasdóttir
Lífshlaup Jóhönnu minnir helst á dramatíska kvikmynd þar sem söguhetjan býr við allsnægtir, frægð og frama þegar eiginmaðurinn biður um skilnað og veröldin hrynur til grunna. Í ljós kemur að á bak við glansmyndina er brotin kona með skelfilega áfallasögu og átröskun. Samhliða því að upplifa líf sitt í rúst fer Jóhanna að stunda hugleiðslu sem færir hana nær sínu innra lífi og síðan upplifun af allsherjar alsælu. Í samtali við Ásdísi Olsen lýsir Jóhanna andlegri vegferð sinni, m.a. sjö ára námi í orkuheilun og kynnum sínum af Barböru Brennan og Dr. Joe Dispenza, sem leiðir merkilega andlega vakningu sem miðar að kærleika og heilun.
Fleiri þættir af Rauða borðið
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026
- Rauða borðið 1. okt - Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi1. október 2026
- Rauða borðið 30. sept - Efnahagur, heimsmál, tíðnimeðferð, Svikasögur og kórar30. september 2026






