Rauða borðið 25. ágúst - Fréttir dagsins, heilbrigðismál, sakhæfisaldur og vending
Þriðjudagur 25. ágúst
Fréttir dagsins, heilbrigðismál, sakhæfisaldur og vending
Nei eða já í Evrópukosningunni, uppsagnir í borginni, menntamál og fleira verður krufið í fréttaspjalli Björns Þorlákssonar við Jón Trausta Reynisson blaðamann, Lárus Guðmundsson athafnamann og Margréti Tryggvadóttur rithöfund. Brýn þörf er á að auka við hjúkrunarrými og legupláss. En hvaða fólk á að starfa þar? Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, og Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, hittu Sigurjón Magnús. Að lækka sakhæfisaldur minnkar ekki endilega glæpi heldur þvert á móti. Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur ræðir við Björn Þorláks um skref Svía að fara niður í 14 ár. Tinna Gunnlaugsdóttir leikkona fór í háskólanám eftir að hafa verið Þjóðeikhússtjóri og ver doktorsritgerð sína á næstu dögum. Hún segir Gunnari Smára frá náminu, þýðingum, leikhúsi og lífinu.
Fleiri þættir af Rauða borðið
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026
- Rauða borðið 1. okt - Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi1. október 2026
- Rauða borðið 30. sept - Efnahagur, heimsmál, tíðnimeðferð, Svikasögur og kórar30. september 2026






