Rauða borðið 26. ágúst - ESB, samvinna, Múlakaffi, samræðusiðfræði og kennarar
Miðvikudagur 26. ágúst
ESB, samvinna,, Múlakaffi, samræðusiðfræði og kennarar
Svandís Svavarsdóttir fyrrum ráðherra, þingmaður, borgarfulltrúi og formaður VG segir Gunnari Smára hvers vegna hún ætlar að segja nei á laugardaginn. Þóroddur Ingvarsson svæfingalæknir á Akureyri ræðir mikilvægi alþjóðlegrar samvinnu í tengslum við björgun sjúklinga og tengir við þjóðaratkvæðagreiðsluna fram undan. Björn Þorláks ræðir við hann. Allir viðmælendur Samstöðvarinnar í slembiúrtaki á Múlakaffi ætla að kjósa eins á laugardag. Björn Þorláks og Pétur Fjeldsted kynntu sér raddir fullorðinna karla. Vilhjálmur Árnason prófessor ræðir við Gunnar Smára um samræðusiðfræði, gildi samtalsins fyrir mennskuna og samfélagið og hvað gerist þegar við týnum samræðunni. Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, telur ekki ástæðu til að kennarar biðjist afsökunar á bágri frammistöðu nemenda skv. Pisa. Björn Þorláks ræðir við hann um raddir þar að lútandi og mörg önnur mál sem varða skólastarf.
Fleiri þættir af Rauða borðið
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026
- Rauða borðið 1. okt - Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi1. október 2026
- Rauða borðið 30. sept - Efnahagur, heimsmál, tíðnimeðferð, Svikasögur og kórar30. september 2026






