Rauða borðið 31. ágúst - Eftir kosningar, Stuðlagil, Trump, Landhelgisgæsla og uppsagnir

· Fréttir

Mánudagur 31. ágúst
Eftir kosningar, Stuðlagil, Trump, Landhelgisgæsla og uppsagnir

Gunnar Smári ræðir við fólk með víðtæka reynslu úr stjórnmálum og fjölmiðlum um stöðu stjórnmála og samfélags eftir niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópusambandið. Páll Ásgeir Ásgeirsson leiðsögumaður ræðir öryggismál í Stuðlagili. Hann segir samspil nokkurra þátta kunna að skýra banaslys við náttúruperlur. Björn Þorláks ræðir við Pál. Það er stutt í mikilvægar þingkosningar í Bandaríkjunum og við endurvekjum af þeim sökum upp Trumptímann. Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur og Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur ræða við Gunnar Smára um Trump, komandi kosningar, áhrif Trump á Evrópu og Evrópusambandið, viðskiptastríð við Kanada o.s.frv. Persónulegt viðtal við forseta Landhelgisgæslunnar, Georg Lárusson, sem útskýrir brestina í röddinni sinni og hvernig hann þarf stundum að berja í borð til að fá hlustun. Georg rifjar upp hvernig var að alast upp í einangrun á prestsetri í Önundarfirði, þar sem varðskip kom oft til bjargar. Hann fagnar 20 ára starfsafmæli og segist vera í draumastarfinu sínu í viðtali við Ásdísi Olsen. Valgeir Þór Jakobsson hjá Samfés ræðir við Björn Þorláks um uppsagnir á velferðar- og frístundasviði hjá borginni. Hann fordæmir öfugþróun og tekur undir áhyggjur lögreglu f vaxandi unglingadrykkju.

Rauða borðið

Úr hlaðvarpinu

Rauða borðið

Gunnar Smári Egilsson

Allir þættir

Fleiri þættir af Rauða borðið