Rauða borðið 1. sept - Gengisfelling, sjónvarpsfréttafall, tíðindi dagsins, þunglyndi og Sinfó
Þriðjudagur 1. september
Gengisfelling, sjónvarpsfréttafall, tíðindi dagsins, þunglyndi og Sinfó
Benedikt Jóhannesson, stofnandi Viðreisnar, segir að fram undan sé stór gengisfelling. Krónan sé allt of sterk. Hann ráðleggur fólki að flytja peningana sína yfir í aðra mynt. Hann ræðir þetta mál og úrslit Evrópukosningarinnar í samtali við Sigurjón Magnús Heimir Már Pétursson og Lára Ómarsdóttir, fyrrverandi fréttamenn á fréttastofu Stöðvar 2/Sýnar, ræða við Björn Þorláks og Sigurjón Magnús þá stöðu sem upp er komin að sjónvarpsfréttir keppinautar Rúv heyra sögunni til. Hvaða áhrif verða af því á samfélagið? Ingibjörg Ottesen eldri borgari, Björk Vilhelmsdóttir félagsráðgjafi og Kristín Erna Arnardóttir hjá Sameyki ræða fréttir líðandi stundar. Þórný Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur fann leið út úr alvarlegu þunglyndi og segir Ásdísi Olsen frá því. Guðni Tómasson, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, ræðir nýjan aðalhljómsveitarstjóra, Barböru Hannigan, og fer yfir hluta af dagskrá sveitarinnar fram að áramótum. Sól Björnsdóttir og Björn Þorláks ræða við Guðna.
Fleiri þættir af Rauða borðið
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026
- Rauða borðið 1. okt - Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi1. október 2026
- Rauða borðið 30. sept - Efnahagur, heimsmál, tíðnimeðferð, Svikasögur og kórar30. september 2026






