Rauða borðið 17. sept - Laxeldisskaði, reynsluboltar, kannabis, laxveiði og heildræn heilsa

· Fréttir

Fimmtudagur 17. september
Laxeldisskaði, reynsluboltar, kannabis, laxveiði og heildræn heilsa

Jóhannes Sturlaugsson fiskifræðingur ræðir hvers vegna opinberar stofnanir hundsa íbúalýðræði og náttúruvernd. Björn Þorláks ræðir við hann. Ragnheiður Davíðsdóttir, Hákon Gunnarsson og Þorsteinn Sæmundsson voru gestir í Reynsluboltum Sigurjóns. Að venju var víða komið við. Kannski stal Donald Trump senunni með öllum sínum tilskipunum. Ýmislegt fleira bar þó á góma. Dr. Magnús Thorson segir Ásdísi Olsen allt um Cannabis Entrepreneurship. Gunnar Bender, ritstjóri Sportveiðiblaðsins, kom og sagði okkur frá veiði sumarsins. Hvar veiðimenn voru kátastir með aflann og hvar ekki. Einn dagur í góðri á kostar frá 4 til 500 þúsund krónur. Heildræn heilsuhátíð fer fram í Mosfellsbæ um helgina í 16. sinn, þar sem boðið er upp á allskonar andlegt og óhefðbundið, skrítið og skemmtilegt. Vigdís Steinþórsdóttir, hjúkrunarfræðingur og fyrrilífsdáleiðari segir Ásdísi Olsen frá því helsta sem verður á dagskrá.

Rauða borðið

Úr hlaðvarpinu

Rauða borðið

Gunnar Smári Egilsson

Allir þættir

Fleiri þættir af Rauða borðið