Rauða borðið 29. sept - Trumptíminn, verðbólga, skyr, SÁÁ og töfrar
Þriðjudagur 29. september
Trumptíminn, verðbólga, skyr, SÁÁ og töfrar
Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur, Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur og Hafsteinn Einarsson stjórnmálafræðingur fara með Gunnari Smára yfir hvernig stefna og orð Trump móta Bandaríkin og heiminn. Breki Karlsson hjá Neytendasamtökunum bregst við verðbólgumælingu dagsins. Hann spyr í samtali við Björn Þorláks hvort högg skuldugra sé verjandi vegna ofurvaxta Seðlabankans þótt markmið bankans séu göfug. Þjóðfræðingarnir Vilborg Bjarkadóttir og Auður Viðarsdóttir kynna rannsókn sem nú stendur yfir á skyri. Skyrgerð til forna lýsir samlífi örveru og manna. Í samtali við Björn Þorláks kallar þær almenning til aðstoðar í þágu vísindanna. Gísli Tryggvason lögmaður fer yfir lagaleg álitaefni með Birni Þorláks. Í kvöld ræða þeir skuldbindingar SÁÁ og Bókun 35. Guðmundur Ragnar fór til Brasilíu til að læra shamanisma hjá töfralækni Huni Kuin-frumbyggja í Amazonregnskóginum. Í samtali við Ásdísi Olsen ræðir hann hjónaband sitt með dóttur töfralæknisins í Pinuya-þorpinu. Þar hefur hann fundið innri frið, sátt og langþráða tilfinningu að tilheyra.
Fleiri þættir af Rauða borðið
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026
- Rauða borðið 1. okt - Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi1. október 2026
- Rauða borðið 30. sept - Efnahagur, heimsmál, tíðnimeðferð, Svikasögur og kórar30. september 2026






