Raunheimakastið (áður Kvíðakynslóðin)
Anna Laufey Stefánsdóttir og Kristín Sævarsdóttir
HeilsaAndleg málefniBörninRaunheimakastið mun beina sjónum sínum að tveimur meginþemum: áhrifum skjánotkunar á börn og unglinga, og mikilvægi hinna “þriðju staða” í samfélaginu. Þáttastjórnendur eru Anna Laufey tölvunarfræðingur og Kristín mannfræðingur og kynjafræðingur. Þær eru báðar mæður sem hafa fundið mikið fyrir áhrifum skjánotkunar og vöntun á sjálfstæði barna. ATH! Raunheimakastið hét áður Kvíðakynslóðin hlaðvarp.




