Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind
Mánudagur 5. október
Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind
Gylfi Zoega prófessor ræðir um efnahaginn við Gunnar Smára, eru að verða straumhvörf hér heima og enn frekar erlendis? Krísan innan SÁÁ vindur enn upp á sig. Snorri Ásmundsson myndlistarmaður, Dóra Jóhannsdóttir leikkona, Ásdís Olsen fjölmiðlakona og Björn Þorláks blaðamaður þekkja öll vel til starfa innan SÁÁ. Þau ræða vandann með hispurslausum hætti. Pálmi V. Jónsson prófessor ræðir umönnun aldraða við Gunnar Smára út frá umfjöllun um geðlyfjanotkun á hjúkrunarheimilum. 65% íslenskra karla tengja það við karlmennsku að leysa ágreining með ofbeldi, samkvæmt nýrri rannsókn sem Norræna ráðherranefndin lét gera. Þórður Kristinsson, mannfræðingur og doktor, segir karlmennskuboxið óþarflega þröngt á Íslandi og tengir þessar niðurstöður við skelfileg skilaboð samfélagsmiðla um að karlmennska feli í sér að vera sterkur, hafa stjórn og standa uppi sem sigurvegari. Ásdís Olsen ræddi við Þórð. Hafsteinn Einarsson dósent við tölvunarfræðideild HÍ ræðir við Gunnar Smára um gervigreind, hvort þróun hennar sé stjórnlaus og geti frekar skaðað en bætt mannlífið.
Fleiri þættir af Samstöðin
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Bókaborðið 4. þáttur - Hilla hinna ólesnu bóka6. október 2026
- Bridgeþátturinn - Parameistarar4. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026
- Rauða borðið 1. okt - Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi1. október 2026






