Rauða borðið 18. nóv - Öldrunarþjónusta, gervigreind, geðlæknir, trans, tónlist og Geir Ólafs
Miðvikudagur 18. nóvember
Öldrunarþjónusta, gervigreind, geðlæknir, trans, tónlist og Geir Ólafs
Sigrún Huld Þorgrímsdóttir, sérfræðingur í öldrunarhjúkrun, ræðir við Ásdísi Olsen um nýja hugsun í öldrunarþjónustu þar sem kærleikurinn er kjarninn og lífsgæði fólks leiðarljósið. Þorsteinn Siglaugsson heimspekingur og hagfræðingur og Hanna Kristín Skaftadóttir dósent og fagstjóri forystu og gervigreindar á Háskólanum á Bifröst ræða við Gunnar Smára um gervigreind, einkum hvaða áhrif hún hefur á stéttaskiptingu. Ólafur Ævarsson geðlæknir ræðir starf geðlæknisins, greiningar, meðferðir, horfur. Ólafur stendur á persónulegum tímamótum, hann lauk störfum fyrir nokkrum dögum. Björn Þorláks ræðir við hann. Reyn Alpha Magnúsdóttir, forseti Trans Íslands, er gestur Örnu Magneu Danks í nýjum lið við Rauða borðið um málefni hinsegin fólks. Atli Ingólfsson tónskáld, Hanna Dóra Sturludóttir prófessor og söngkona, Eyþór Ingi Jónsson organisti kórstjóri og Bergljót Kristjánsdóttir íslenskufræðingur segja Gunnari Smára frá tónleikum á sunnudaginn, stöðu nýrrar tónlistar, hrekksemi og fleira. Geir Ólafs söngvari heimsækir Gunnar Smára og fræðir hann um tónlist og söng.
Fleiri þættir af Samstöðin
- Hvernig í ósköpunum enduðum við hér? - 2. þáttur: Ósköpin22. nóvember 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Ómar Stefáns II21. nóvember 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 4720. nóvember 2026
- Rauða borðið 19. nóv - Evrópa, þrír pólar, lögfræði, trans, háskólar, bíó, Balí og ópera19. nóvember 2026
- Græna borðið 29. þáttur - Aktívismi unga fólksins18. nóvember 2026
- Rauða borðið 17. nóv - Húsnæðiskrísa, dýravelferð, ADHD, stjúptengsl, Grettla og tónlist17. nóvember 2026






