María Einarsdóttir, Maya
María Einarsdóttir framkvæmdastjóri NTC er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í Segðu mér í dag. María var orkumikið barn sem skipti nánast á einni nóttu íþróttum út fyrir tísku. Hún hefur lifað og hrærst í heimi tískunnar í áratugi en tók líf sitt í gegn fyrir um 15 árum, hætti að drekka og gerði upp áföll, meðal annars sáran barnsmissi en elsti sonur hennar lést aðeins nokkurra mánaða gamall.