Þórir Kjartansson

· Menning, Samfélagið, Málefni, Landið

Þórir Kjartansson bílstjóri og öryggisvörður borgarstjóra er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í Segðu mér í dag. Saga Þóris er sannkölluð kraftaverkasaga en hann fór frá því að vera heimilislaus og sofa stundum í bílakjallara ráðhússins yfir í að vera bílstjóri borgarstjóra. Hann segir okkur ótrúlega sögu sína í dag- frá ofbeldi, neyslu og skömm yfir í að öðlast frelsi, fallegt líf og að vera treyst fyrir mikilli ábyrgð í störfum sínum. Við kynnumst Þóri í þætti dagsins.

Fleiri þættir af Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur