6. þáttur: Kólnandi spá í efnahagskortunum, Trump á yfirsnúningi
Við byrjum á vettvangi dagsins. Ýmis teikn benda til að hagkerfið sé að kólna, vinnumálastofnun var tilkynnt um fimm hópuppsagnir í september, fyrir utan gjaldþrot Play. Þá hefur ríkisstjórnin boðað sérstaka atvinnustefnu og lætur í skína að nú sé liðinn sá tími að hagvöxtur sé fyrst of fremst borinn uppi af innfluttu vinnuafli.
Gestir Silfursins eru Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins og Einar Freyr Elínarson, bæjarstjóri í Mýrdalshreppi.
Í seinni hluta þáttar ætlum við að ræða við mann að nafni John Fund, þrautreyndan blaðamann frá Bandaríkjunum sem skrifað hefur meðal annars fyrir Wall Street Journal en er nú einn af ritstjórum National Review, tímariti Íhaldsmanna þar í landi. Hann hefur þekkt og skrifað um Donald Trump Bandaríkjaforseta í meira en 40 ár - og segir að hann sé kominn á yfirsnúning, vitandi að tími hans sé af skornum skammti.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Fleiri þættir af Silfrið
- Atvinnuleysi á tímum gervigreindar og Anne Applebaum5. október 2026
- Siðferðislegt hugleysi og heimurinn í dag28. september 2026
- Trumpískar vindmyllur og tjóðruð gervigreind21. september 2026
- Þessi þungu högg - sleggjan og hallalaus fjárlög14. september 2026
- Ísland - hvað nú? Verkefnalistinn eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna8. september 2026
- Formenn gera upp þjóðaratkvæðagreiðslu1. september 2026






