Silfrið

RÚV Hlaðvörp

Fréttir

Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni. Þátturinn er aðgengilegur í mynd í spilara RÚV. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Atvinnuleysi á tímum gervigreindar og Anne Applebaum

Meira en 180 manns misstu vinnuna í hópuppsögnum í september. Stór hluti þeirra eru forritarar og tölvunarfræðingar; auk þess sem bankastarfsmenn og opinberir starfsmenn, t.d. lögfræðingar hafa verið að missa vinnuna í smærri uppsagnarlotum. Er áhrifa fjórðu iðnbyltingarinnar, gervigreindarbyltingarinnar, farið að gæta á íslenskum vinnumarkaði? Hvernig er best að bregðast við þeim nýju kröfum sem gervigreindin gerir á vinnustöðum landsins? Gestir þáttarins eru Ásta Ásgeirsdóttir deildarstjóri greiningardeildar Vinnumálastofnunar, Hjálmar Gíslason formaður starfshóps um nálgun stjórnvalda í málefnum gervigreindar, Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur Visku stéttarfélags og Þorsteinn Víglundsson formaður Samtaka iðnaðarins og fyrrverandi félagsmálaráðherra. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, heimsækir Ísland í dag. Í seinni hluta þáttarins verður rætt við einn þekktasta stjórnmálagreinanda samtímans, bandaríska sagnfræðinginn og blaðamanninn Anne Applebaum, um breytta utanríkismálastefnu Bandaríkjanna, uppgang og aukið samstarf einræðisstjórna í heiminum, og stöðu Íslands. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Siðferðislegt hugleysi og heimurinn í dag

Ræða Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna vakti heimsathygli um helgina, þar sem hún sneri ásökunum Benjamíns Netanyahus um siðferðislegt hugleysi upp á hann sjálfan, og gagnrýndi þá þjóðarleiðtoga sem stunda stríðsrekstur og brot á alþjóðalögum. Silfrið verður helgað umræðu um framtíð alþjóðakerfisins, friðsamlegs samstarfs þjóða heims og stöðu Íslands í heiminum. Rætt verður við Þorgerði Katrínu, auk þess sem Friðjón Friðjónsson almannatengill, Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur, Helgi Steinar Gunnlaugsson blaðamaður og Jón Ólafsson heimspekingur ræða stöðuna í alþjóðamálum. Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Trumpískar vindmyllur og tjóðruð gervigreind

Eftir öryggisbrest hjá OpenAI í sumar hafa forkólfar nokkurra stærstu tæknifyrirtækja heims kallað eftir því að hægt verði á þróuninni. Á sama tíma eru fjárfestingar í gervigreind og orkuöflun fyrir hana orðnar mikilvægur drifkraftur hagvaxtar í Bandaríkjunum og Kína. Hvaða áhrif hefði það á heimsbúskapinn - og Ísland - ef hægt yrði á kapphlaupinu? Og hversu mikla orkuöflun á kostnað náttúruauðlinda er hægt að réttlæta? Andri Snær Magnason rithöfundur, Þóra Arnórsdóttir, forstöðumaður samskipta hjá Landsvirkjun, og Björgvin Ingi Ólafsson, sviðsstjóri hjá Deloitte, fóru yfir stöðuna. Bjartsýni var ríkjandi á Vesturlöndum um aldamótin og útbreidd trú á sigurför frjálslynds lýðræðis, kapítalisma og hnattvæðingar. Fáir hefðu spáð að aldarfjórðungi síðar einkenndist heimsmyndin af átökum, uppgangi þjóðernishyggju og alþjóðakerfi sem ætti undir högg að sækja. Hvað gerðist – og hvert stefnir heimurinn? Guðmundur Jónsson, sagnfræðingur og prófessor emeritus, fer yfir sviðið í síðari hluta þáttar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Þessi þungu högg - sleggjan og hallalaus fjárlög

Fjárlagafrumvarpið og þingmálaskrá vetrarins verða efst á baugi í Silfrinu í kvöld. Eru hallalaus fjárlög lykillinn að lægri verðbólgu eða eru skatta- og gjaldskrárhækkanir olía á eldinn?  Þingmennirnir Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Hildur Sverrisdóttir, Sigurjón Þórðarson og Þórarinn Ingi Pétursson fara yfir stöðuna Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Ísland - hvað nú? Verkefnalistinn eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna

Þjóðin hefur svarað spurningunni um það hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við ESB. Svarið var neitandi, en þó standa eftir margar spurningar sem þarf að svara á næstu misserum. Silfrið verður helgað þeim verkefnum sem framundan eru í hagkerfinu og samskiptum Íslands við umheiminn, m.a. í gegnum EES-samninginn og Atlantshafsbandalagið. Gestir verða Benedikt Gíslason, forstjóri Arion banka, Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, Björn Bjarnason, fv. dómsmálaráðherra, Sigríður Mogensen, sviðstjóri hugverka og iðnaðar hjá Samtökum iðnaðarins, Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB og Stefán Pálsson sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi Vinstrisins. Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Formenn gera upp þjóðaratkvæðagreiðslu

Meirihluti kjósenda hafnaði í gær að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Formenn stjórnmálaflokka á Alþingi gera þjóðaratkvæðagreiðsluna upp í Silfrinu. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Kjör almennings og viðsjár í veröldinni

Kjósendur velta fyrir sér kostum og göllum þess að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið, hver áhrifin gætu orðið á kjör almennings í landinu, lífsgæði, verðlag og húsnæðismál. Þá bárust þær fréttir í vikunni að yfirhershöfðingi NATO vilji fast herlið á Íslandi. Gestir þáttarins eru Brynhildur Pétursdóttir framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna, Helga Rósa Másdóttir formaður Félags hjúkrunarfræðinga, hagfræðingarnir Gauti B. Eggertsson og Jón Helgi Egilsson, og Sóley Kaldal sérfræðingur í alþjóðlegum öryggismálum. Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Atvinnulífið, fullveldið og Evrópusambandið

Fólkið og fyrirtækin í landinu velta fyrir sér kostum og göllum þess að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. En önnur verkefni bíða líka; forsendur kjarasamninga eru brostnar og óvíst hvernig megi berja í brestina svo samningarnir haldi. Þjóðaratkvæðagreiðslan hefur líka vakið þjóðina til umhugsunar um fullveldi sitt og sambandið við umheiminn. Gestir þáttarins eru Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti Íslands og sagnfræðingur, Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims hf., Halla Gunnarsdóttir formaður VR stéttarfélags og Sveinn Sölvason forstjóri Emblu Medical/Össurar. Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Formenn takast á um aðildarviðræður

Silfrið hefur göngu sína á ný að loknu sumarleyfi. Það styttist í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Formenn stjórnmálaflokka á Alþingi -  Kristrún Frostadóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Inga Sæland, Guðrún Hafsteinsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Lilja Alfreðsdóttir - mætast í beinni útsendingu. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

36. þáttur: Um hvað yrði samið í nýjum aðildarviðræðum?

Hvað gerist ef þjóðin greiðir atkvæði með því að hefja aftur aðildarviðræður við Evrópusambandið 29. ágúst? Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra og aðalsamningamaður Íslands í aðildarviðræðunum 2009-2013 segir frá samningaferlinu og því ferli sem tekur við ákveði Íslendingar að ganga aftur að samningaborðinu. Í síðari hluta þáttarins koma Gylfi Magnússon hagfræðiprófessor við HÍ, Margrét Einarsdóttir prófessor í Evrópurétti við HR, Kolbeinn Árnason ráðuneytisstjóri atvinnuvegaráðuneytisins og Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur og ræða helstu málefni sem þyrfti að semja um í aðildarviðræðunum. Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Þér gæti líka líkað...