#31 - Er jólasveinninn til?
Er sagan um jólasveininn eitt útbreiddasta samsæri mannkynssögunnar? Eða er samsæriskenningin kannski sú að afneita tilvist hans? Í þessum sérstaka jólaþætti Skuggavaldsins rekja Eiríkur og Hulda sögu jólasveinsins frá leyndardómsfullu ráni á beinum heilags Nikulásar til mótunar hinnar bandarísku Santa Claus-ímyndar. Sérstök athygli er veitt íslensku jólasveinunum, sem gætu allt eins verið álitnir skipulagður glæpahringur þar sem hver sveinn gegnir sérhæfðu hlutverki í markvissum matarránsferðum undir stjórn Grýlu. Við veltum fyrir okkur sálfræðinni á bak við „stóru lygina“ – ef hún er þá lygi – og spyrjum hvort við höfum vanmetið getu fullorðinna til að sammælast um blekkingu, en þátturinn tekur óvænta stefnu þegar sjálfur Gáttaþefur ryðst inn í stúdíóið til að verja heiður sinn.
Skuggavaldið er í samstarfi við Vesturröst og Plöntuna kaffihús og bístró
Sendið okkur ábendingar á skuggavaldid@gmail.com
Fleiri þættir af Skuggavaldið
- #51 - Ulrike Meinhof og Rauðu herdeildirnar í Þýskalandi - fyrri þáttur28. september 2026
- #50 - Epstein og samsæriskenningarnar - seinni þáttur14. september 2026
- #49 - Epstein 1: Ris, fall og óútskýrð auðæfi31. ágúst 2026
- #48 - Evrópusambandið og sögurnar um það17. ágúst 2026
- #47 - Hvað er eiginlega í gangi á Svalbarða?3. ágúst 2026
- #46 - Stóra Tartaría - heimsveldið sem hvarf í leðjuflóði20. júlí 2026
