Skuggavaldið

skuggavaldid

Menning & listir

Í Skuggavaldinu ræða prófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir saman um hvaðeina er viðkemur samsæriskenningum. Samfara örum samfélagsbreytingum hefur samsæriskenningum hratt vaxið fiskur um hrygg, svo sem í kjölfar Brexit, stjórnartíðar Donalds Trump og COVID-faraldursins. Samsæriskenningar eru þó ekki nýjar af nálinni, heldur hafa þær fylgt manninum frá öndverðu og nærast á þörf til að greina hulið skipulag í óreiðu. Framleitt af Tal.

#51 - Ulrike Meinhof og Rauðu herdeildirnar í Þýskalandi   - fyrri þáttur

Var Vestur-Þýskaland eftirstríðsáranna í raun fasistaríki í dulargervi? Eiríkur og Hulda rekja vegferð Ulrike Meinhof inn í Rauðu herdeildina, RAF, og skoða þá heimsmynd sem varð til þess að hópur ungra róttæklinga taldi vopnaða baráttu ekki aðeins réttlætanlega heldur nauðsynlega. Fjallað er um óuppgert uppgjör við nasismann, morðið á Benno Ohnesorg, Andreas Baader og Gudrun Ensslin og örlagastundina þegar Meinhof yfirgaf borgaralegt líf sitt og fór í felur. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.  Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á skuggavaldid@gmail.com.

#50 - Epstein og samsæriskenningarnar - seinni þáttur

Stytti Jeffrey Epstein sér aldur, eða var honum hjálpað við það? Í seinni þætti af tveimur um Epstein-málið ræða Hulda og Eiríkur hvernig frasinn „Epstein drap sig ekki“ varð að alþjóðlegri samsæriskenningu eftir að hann fannst látinn í fangaklefa sínum árið 2019. Fjallað er um njósnakenningar tengdar CIA, Mossad og Kreml, ný skjöl sem nýlega hafa komið í ljós, dularfull dauðsföll í Frakklandi og af hverju Epstein-málið heldur áfram að skaka stjórnmálin, sjö árum eftir andlát hans. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.  Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á skuggavaldid@gmail.com.

#49 - Epstein 1: Ris, fall og óútskýrð auðæfi

Jeffrey Epstein braut kynferðislega á fjölda stúlkna og ungra kvenna árum saman en naut á sama tíma verndar valdafólks og undarlega vægrar meðferðar réttarkerfisins. Hulda og Eiríkur rekja ævi hans, allt frá æskunni í verkamannahverfi í Brooklyn, til lúxulífs og loks fangaklefans þar sem hann dó. Fyrri þáttur af tveimur um þetta mál sem skekið hefur samfélagið og hefur ekki enn verið leitt að fullu til lykta. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.  Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á skuggavaldid@gmail.com.

#48 - Evrópusambandið og sögurnar um það

Er ESB Sovétríkin endurfædd? Eða “Fjórða ríkið”? Eiríkur og Hulda rekja hvernig þunglamalegt evrópskt skrifræði verður að uppsprettu lygilegustu hrollvekja, allt frá meintu sæti Andkrists á Evrópuþinginu til áforma Davos-elítunnar um mannfjöldaskipti. Loks er rýnt í hvernig þessar alþjóðlegu flökkusögur fá staðbundinn blæ á Íslandi, þar sem sambandið er teiknað upp sem myrkt skuggavald sem hyggst stela fiskinum, ræna orkunni og skikka ungmenni önnur en íslensku elítunnar í herinn. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.  Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á skuggavaldid@gmail.com.

#47 - Hvað er eiginlega í gangi á Svalbarða?

Var dómsdagshvelfingin á Svalbarða reist svo heimselítan gæti náð stjórn á matvælaframleiðslu heimsins? Hulda og Eiríkur rýna inn í frosna fjallshlíð þar sem fræ frá um hundrað löndum eru geymd. En á þessum sama ísilagða eyjaklasa kraumar líka annað og raunverulegra njósnastríð, þar sem rússneskir togarar sigla yfir sæstrengi sem rofna á dularfullan hátt. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.  Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á skuggavaldid@gmail.com.

#46 - Stóra Tartaría - heimsveldið sem hvarf í leðjuflóði

Drukknaði eitt stærsta heimsveldi mannkynssögunnar í leðju og var kjölfarið þurrkað út úr öllum sögubókum? Hulda og Eiríkur ræða söguna um Stóru Tartaríu, eina furðulegustu og áhrifamestu samsæriskenningu alnetsins. Við rekjum slóðina frá hugmyndum virtasta stærðfræðings Rússlands í Moskvu, yfir í gamlan landafræðilegan misskilning Evrópumanna, og alla leið til 580 þúsund manna Facebook-hóps þar sem menn leita að týndum jarðhæðum stórborga. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.  Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á skuggavaldid@gmail.com.

#45 - Útskiptin miklu – seinni þáttur

Umturnaði samsæriskenningin um útskiptin miklu Vestrænum stjórnmálum varanlega? Í seinni þætti af tveimur um útskiptin miklu ræða Eiríkur og Hulda hvernig óttinn um „Evrarabíu“ færðist úr afviknum kimum internetsins og beint inn í hjarta stjórnmálanna í kjölfar áfalla á borð við 11. september, fjármálahrunið og flóttamannakrísuna.   Kíkt er ofan í vélarúm popúlismans, hvernig hefðbundnir flokkar hafa brugðist við, og að lokum veltum við upp sálfræðinni. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á skuggavaldid@gmail.com

#44 - Útskiptin miklu - fyrri þáttur

Standa íslamistar í Miðausturlöndum að því að skipta út kristnu fólki í Evrópu fyrir múslima? Jafnvel með aðstoð evrópskrar elítu? Þessi ótti er kjarninn í samsæriskenningunni um Evrarabíu og „útskiptin miklu“ (The Great Replacement). Í fyrri þætti af tveimur rekja Eiríkur og Hulda tilurð sögunnar og kryfja hvernig slíkar samsæriskenningar færðust af myrkum jaðri internetsins og urðu að hversdagslegu stjórnmálavopni. Rætt er um Le Pen í Frakklandi og Glistrup í Danmörku og rýnt í það hvernig útskúfuð kynþáttahyggja fór í spariföt og sneri aftur sem „kynþáttafjölhyggja“ til að gera hræðsluáróður boðlegan á ný. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á skuggavaldid@gmail.com

#43 - Tuskegee-rannsóknin: Þegar svart fólk var blekkt til dauða í nafni vísinda

Var svart fólk dregið til dauða í nafni vísindanna? Árið 1932 bauð bandaríska ríkið fátækum, svörtum bændum ókeypis „lækningu“ við „slæmu blóði“ sem varð upphafið að fjörutíu ára martröð. Hulda og Eiríkur rekja sögu Tuskegee-rannsóknarinnar, þar sem læknar meinuðu mönnum vísvitandi um lífsbjargandi lyf við sárasótt. Við kryfjum þetta raunverulega samsæri yfirvalda, mál sem skapaði djúpstætt vantraust og elur enn þann dag í dag á nýjum samsæriskenningum. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á skuggavaldid@gmail.com

#42 - Fljúgandi furðuhlutir - seinni þáttur

Gangast ráðamenn nú við torkennilegum fyrirbærum í háloftunum? Í síðari þætti um fljúgandi furður rýna Hulda og Eiríkur í hvernig yfirvöld hafa færst frá því að mæta öllum tilkynningum með afneitun - sem einmitt kynti undir langsóttum samsæriskenningum um að stjórnvöld leyni heimsókn geimvera - yfir í að viðurkenna nú takmarkaða þekkingu sína á ýmsu því sem örðugt er að greina. Það þýðir þó ekki að menn trúi nú á tilvist geimvera en samsæriskenningar nærast einmitt á slíkri óvissu, líkt og rakið er í þættinum. Skuggavaldið er í samstarfi við , bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á skuggavaldid@gmail.com

Þér gæti líka líkað...