#52 - Ulrike Meinhof og Rauðu herdeildirnar - seinni þáttur
Voru leiðtogar Rauðu herdeildanna myrtir af vestur-þýska ríkinu inni í Stammheim-fangelsinu? Í síðari þætti Skuggavaldsins um Ulrike Meinhof og Rauðu herdeildirnar rekja Eiríkur og Hulda hina blóðugu lokakafla sögunnar um Baader-Meinhof gengið og ræða fangavistina í Stammheim, dauða Meinhof, Þýska haustið 1977, flugránið í Mogadishu og hina dularfullu nótt þegar Baader, Ensslin og Raspe fundust látin í klefum sínum. Var um samhæfð sjálfsvíg að ræða – eða ríkismorð?
Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.
Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á skuggavaldid@gmail.com.
Fleiri þættir af Skuggavaldið
- #54 - Langamma njósnari9. nóvember 2026
- #53 - Mitrokhin skjölin26. október 2026
- #51 - Ulrike Meinhof og Rauðu herdeildirnar í Þýskalandi - fyrri þáttur28. september 2026
- #50 - Epstein og samsæriskenningarnar - seinni þáttur14. september 2026
- #49 - Epstein 1: Ris, fall og óútskýrð auðæfi31. ágúst 2026
- #48 - Evrópusambandið og sögurnar um það17. ágúst 2026
