126 - Hannibal, Karþagó og Púnverjastríðin
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um púnversku stríðin milli Rómar og Karþagó, með sérstaka áherslu á annað púnverska stríðið (218–201 f.Kr.) og leiðtoga Karþagómanna, Hannibal Barca.
Hannibal er einn þekktasti herforingi fornaldarinnar og varð ódauðlegur í minni Rómverja fyrir herför sína frá Spáni til Ítalíu. Hann fór yfir Alpana með stríðsfíla og fjölmennan innrásarher og vann hvern stórsigurinn á fætur öðrum gegn Rómverjum á Ítalíu. Þrátt fyrir hernaðarsnilli sína og glæsilega sigra tókst honum þó aldrei að hertaka Róm. Að lokum færðu Rómverjar stríðið til Afríku og sigruðu Karþagómenn.
Púnversku stríðin þrjú voru átök tveggja stórvelda sitt hvorum megin við Miðjarðarhafið um yfirráð á svæðinu. Eftir endanlegan sigur Rómverja árið 146 f.Kr., þegar Karþagó var lögð í eyði, stóð ekkert annað veldi jafnfætis Róm. Hefði Hannibal tekist að hertaka borgina má færa sterk rök fyrir því að saga Miðjarðarhafsheimsins hefði orðið allt önnur.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Fleiri þættir af Söguskoðun
- 131 - Deild 731: Sýklavopnaþróun og læknisfræðitilraunir Japana í seinni heimsstyrjöld31. október 2026
- 130 - Hollywood og upphaf kvikmyndaiðnaðarins25. október 2026
- 129 - Sjálfstæðisbarátta Íslendinga og sjálfstæði Íslands12. október 2026
- 128 - Suðurríkin, þrælahaldið og aðdragandi ameríska borgarastríðsins17. september 2026
- 127 - Rússneska borgarastyrjöldin: Hverjir voru hvítliðar?28. ágúst 2026
- 125 - Hugmyndin um réttlátt stríð7. júlí 2026






