128 - Suðurríkin, þrælahaldið og aðdragandi ameríska borgarastríðsins
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um andstæður norður- og suðurríkja Bandaríkjanna sem gerðu vart um sig þegar leið á 19. öldina þar til uppúr sauð og borgarastyrjöld braust út.
Bandaríkin voru á 19. öld að þróast úr sambandi ungra ríkja í stórveldi og á sama tíma jókst munurinn á samfélagi og efnahagslífi norðursins og suðursins. Í Suðurríkjunum varð mannaflsfrek bómullarframleiðsla undirstaða efnahagslífsins, á meðan iðnvæðing, innflutningur og fólksfjölgun einkenndu norðurríkin.
Þrælahaldið varð sífellt stærra deilumál innan Bandaríkjanna og ágreiningur stóð um hvort leyfa ætti það í nýjum fylkjum eftir því sem Bandaríkin þöndust út í villta vestrið. Mismunandi sýn norðursins og suðursins á frelsi og hlutverk alríkisins, ólík efnahagsmódel og menningarmunur leiddu loks til þess að suðurríkin klufu sig út úr sambandinu.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Fleiri þættir af Söguskoðun
- 127 - Rússneska borgarastyrjöldin: Hverjir voru hvítliðar?28. ágúst 2026
- 126 - Hannibal, Karþagó og Púnverjastríðin17. júlí 2026
- 125 - Hugmyndin um réttlátt stríð7. júlí 2026
- 124 - Ríki, vald og realismi: Hvernig haga ríki sér?24. júní 2026
- 123 - Skálholt: Hinn forni höfuðstaður Íslands9. júní 2026
- 122 - Danmörk-Noregur: Staða Noregs í Aldinborgararíkinu15. febrúar 2026






