Gróðavon í almyrkva, kosið í Danmörku 24. mars, vanþóknun Bandaríkjanna á Alþjóðaglæpadómstólnum

· Fréttir

Almyrkvi verður á sólu í ágúst og verður óvíða meiri en á vestanverðu Íslandi. Ljósið í myrkrinu, í augum margra Íslendinga, er að fjöldi ferðafólks streymir hingað til að upplifa sortann - og fjölmargir freista þess að leigja út hús sín og íbúðir á uppsprengdu verði á þessum tíma. Seðlabankastjóri fagnar uppgripum fyrir hönd ferðaþjónustunnar og líkir þessu við loðnuvertíð.

Mikið er í húfi fyrir jafnaðarmenn í Danmörku þegar kosið verður 24. mars en hvað brennur helst á fólki kosningabaráttunni?

Bandarísk stjórnvöld hafa beitt starfmenn alþjóðastofnana sem þeim ekki þóknast refsiaðgerðum, til dæmis dómara við Alþjóðaglæpadómstólinn í Haag.

Spegillinn

Úr hlaðvarpinu

Spegillinn

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Spegillinn