ESB, úkraínsk börn og súkkalaðið sem er stolið í tonnavís

· Fréttir

Umræðan um Evrópusambandið og aðild Íslands að því fer oft í skotgrafirnar, bæði hjá stuðningsmönnum og andstæðingum. Framundan er þriðja umræðan á Alþingi þar sem tekist verður á um stöðu Íslands

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir segir það óumsemjanlegur hluti af friði í Úkraínu að Rússar skili þeim þúsundum barna sem þeir hafa kerfisbundið stolið. Nöfnum barnanna hefur í mörgum tilvika verið breytt og Rússar telja sig vera að vinna góðverk.

Súkkulaði er orðið eitt allra vinsælasta þýfi breskra búðarþjófa síðustu mánuði og misseri. Svo rammt er tekið að kveða að þessu, segir í umfjöllun breska ríkisútvarpsins BBC, að nokkrar stórar verslanakeðjur eru farnar að geyma allra vinsælasta súkkulaðið í læstum plast- eða glerskápum í sumum verslana sinna, þannig að viðskiptavinir þurfa að biðja afgreiðslufólk um aðstoð til að komast í góðgætið.

Spegillinn

Úr hlaðvarpinu

Spegillinn

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Spegillinn