Sigurður Ingi loðinn í svörum og meira af Kúbustjórn í ólgusjó

· Fréttir

Sigurður Ingi Jóhannsson vaknar á mánudag sem óbreyttur þingmaður þegar flokkurinn hefur kosið sér nýjan formann. Honum líður ágætlega með sína ákvörðun sem var lengi í fæðingu. Hann er loðinn í svörum um hvað gerist næst.

Engin fyrri bandalagsríki Kúbu virðast ætla eða geta komið þarlendum stjórnvöldum til bjargar. Kúbverjar eru mjög háðir innfluttri olíu, ekki bara fyrir samgöngur og iðnað heldur framleiða þeir nánast allt sitt rafmagn með olíu. Rafmagn hefur verið stopult á Kúbu um árabil, og enn stopulla eftir að olíuinnflutningur frá Venesúela tók að dragast verulega saman í byrjun þessa áratugs. Það leiddi til fjöldamótmæla, sem stjórnvöld börðu niður af mikilli hörku.

Spegillinn

Úr hlaðvarpinu

Spegillinn

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Spegillinn