Gunnar Bragi um aðildarviræður við ESB, erlendur áróður og

· Fréttir

Gunnar Bragi Sveinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, hefur falið lögmanni sínum að krefja utanríkisráðuneytið um gögn og samskipti vegna aðildarumsóknar Íslands að Evrópusambandinu og lúkningu hennar á þeim tíma sem hann var utanríkisráðherra.
Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Gunnar Braga.

Þrír fjórðu aðspurðra í könnun sem gerð var fyrir fjölmiðlanefnd og Netvís um lýðræði og skautun í vetur segjast hafa orðið varir við áróðursherferðir erlendra ríkja á síðustu 12 mánuðum og langflestir segjast sjá slíkt á Facebook. Rúmur þriðjungur hefur miklar áhyggjur af að áróður erlendra ríkja hafi áhrif á kosningar eða þjóðaratkvæðagreiðslur. Rétt um helmingur segist geta séð vel í gegnum undirróðurinn. Skúli Bragi Geirdal sviðsstjóri Netvíss segir erfitt að svara hvað það er sem fólk sér þegar það segist verða vart við áróðursherferðir á netinu. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Skúla Braga.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Úlfhildur Eysteinsdóttir

Spegillinn

Úr hlaðvarpinu

Spegillinn

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Spegillinn