Guðmundur hringdi ríkislögreglustjóra en ekki dómsmálaráðherra og aðstöðumunur í framhaldsskólum
Sex framhaldsskólar í landinu geta ekki boðið þær einingar í stærðfræði sem þarf til að komast í verkfræði og raungreinanám. Þetta hefur gerst í kjölfar breyinga sem urðu fyrir rúmum tíu árum, á námsskrá og námsbrautum framhaldsskólanna og svo styttingunni. Breytingar sem erfiðara er að takast á við í smærri skólum, ekki síst á landsbyggðinni. Við fjöllum líka um málaferli sem Orkubú Vestfjarða stendur í og snýst um vatnsréttindi á Vestfjörðum.
Spegillinn greindi í gær frá samskiptum ráðherra og ríkislögreglustjóra í aðdraganda þess að brottvísun hins tólf ára gamla Yazans Tamimi og fjölskyldu hans var frestað mánudaginn 16. september. Þótt forsætisráðherra hefði sagt það skýrt í skilaboðum til ríkislögreglustjóra þennan mánudagsmorgun og ítrekað það í fjölmiðlum daginn eftir að brottvísun fjölskyldunnar stæði hafa þau engu að síður fengið alþjóðlega vernd og dvalarleyfi hér næstu tvö árin hið minnsta. Við fjöllum áfram um það mál.
Fleiri þættir af Spegillinn
- Gengi krónunnar, Marco Rubio, skortur á íslenskum námsgögnum6. október 2026
- Ládeyða í kauphöllinni, mjólkurkvóti og ísbirnir5. október 2026
- Ládeyða í kauphöllinni, mjólkurkvóti og ísbirnir5. október 2026
- Skipulagsmál og byggingamarkaðurinn, ebólufaraldur í Kongó, þjóðhátíðardagur Kína2. október 2026
- Skipulagsmál og byggingamarkaðurinn, ebólufaraldur í Kongó, þjóðhátíðardagur Kína2. október 2026
- Skipulagsmál og byggingamarkaðurinn, ebólufaraldur í Kongó, þjóðhátíðardagur Kína2. október 2026