Kjörstöðum senn lokað í Danmörku, breytingar á bráðamóttöku og vegleg gjöf Haalands
Kosningabaráttan í Danmörku var snörp því Mette Fredediksen, leiðtogi jafnaðarmanna og forsætisráðherra, boðaði óvænt til kosninga fyrir tæpum mánuði. Í gær sagðist um fimmtungur danskra kjósenda ekki vera búinn að gera upp hug sinn. Það er búist við spennandi kosninganótt því mjótt verði á munum milli rauðu og bláu fylkinganna, Hallgrímur Indriðason hefur fylgst með lokasprettinum.
Til stendur að gjörbylta bráðamóttökunni í Fossvogi til að koma í veg fyrir þá örtröð og troðning sem hefur einkennt hana síðustu ár. Rafn Benediktsson framkvæmdastjóri bráða-, lyflækninga og endurhæfingarþjónustu á Landspítalanum vonar að breytingarnar marki tímamót.
Norska fótboltahetjan Erling Braut Haaland hefur fært heimabyggð sinni góða gjöf, rúmlega fjögurra alda gamla þýðingu á íslensku höfuðriti um norska konunga, Heimskringlu.
Fleiri þættir af Spegillinn
- Gengi krónunnar, Marco Rubio, skortur á íslenskum námsgögnum6. október 2026
- Ládeyða í kauphöllinni, mjólkurkvóti og ísbirnir5. október 2026
- Ládeyða í kauphöllinni, mjólkurkvóti og ísbirnir5. október 2026
- Skipulagsmál og byggingamarkaðurinn, ebólufaraldur í Kongó, þjóðhátíðardagur Kína2. október 2026
- Skipulagsmál og byggingamarkaðurinn, ebólufaraldur í Kongó, þjóðhátíðardagur Kína2. október 2026
- Skipulagsmál og byggingamarkaðurinn, ebólufaraldur í Kongó, þjóðhátíðardagur Kína2. október 2026