Sjómenn og veiðigjöld, mótmæli í Tyrklandi, aðstæður úkraínskra barna
Fiskverð skiptir sjómenn öllu, segir Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambandsins. Ef verð á uppsjávarfiski hefur verið vanmetið árum saman eiga sjómenn inni hjá útgerðinni og hljóta að sækja það aftur í tímann - þó ekki sé enn ljóst hvernig. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Valmund.
Mótmæli brutust út í Istanbúl og fleiri borgum Tyrklands í liðinni viku, þegar út spurðist að borgarstjórinn Ekrem Imamoglu hefði verið handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald, sakaður um spillingu og hryðjuverkastarfsemi. Áður hafði Istanbúl-háskóli ógilt háskólagráðu hans, en háskólapróf er forsenda þess að menn geti farið í forsetaframboð í Tyrklandi - en Imamoglu þykir manna líklegsastur til að geta fellt Recep Tayyip Erdogan í forsetakosningum eftir þrjú ár. Sema Erla Serdaroglu stjórnmálafræðingur og aðjúnkt segir það ekki nýtt, að ráðist sé að pólitískum andstæðingum Erdogans með þessum hætti. Ævar Örn Jósepsson ræðir við hana.
Evrópuráðið ákvað nýlega að skipa Þórdísi Kolbrúnu Gylfadóttur fyrrverandi utanríkisráðherra sem sérstakan sendifulltrúa ráðsins í málefnum barna í Úkraínu. Þórdís var í síðustu viku í Kyiv til að kynna sér aðstæður. Björn Malmquist fréttamaður var þá staddur í borginni og ræddi við Þórdísi.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Kormákur Marðarson
Fleiri þættir af Spegillinn
- Gengi krónunnar, Marco Rubio, skortur á íslenskum námsgögnum6. október 2026
- Gengi krónunnar, Marco Rubio, skortur á íslenskum námsgögnum6. október 2026
- Ládeyða í kauphöllinni, mjólkurkvóti og ísbirnir5. október 2026
- Ládeyða í kauphöllinni, mjólkurkvóti og ísbirnir5. október 2026
- Skipulagsmál og byggingamarkaðurinn, ebólufaraldur í Kongó, þjóðhátíðardagur Kína2. október 2026
- Skipulagsmál og byggingamarkaðurinn, ebólufaraldur í Kongó, þjóðhátíðardagur Kína2. október 2026