Áfall þegar stjórnarmaður var settur í gæsluvarðhald, morð á blaðamönnum og sameiningarmál

· Fréttir

Formaður Félags talsmanna umsækjenda um alþjóðlega vernd segir það hafa verið áfall þegar stjórnarmaður í félaginu var handtekinn nýverið og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Mikilvægt sé þó að gera greinarmun á þeim sem lögreglan vísi burt á landamærunum og síðan hinum sem koma til Íslands í leit að alþjóðlegri vernd.

Kosningu um sameiningu Húnaþings vestra og Dalabyggðar lýkur á laugardag. 1.850 íbúar yrðu sameinuðu sveitarfélagi en sameiningin yrði um margt óvenjuleg. Sveitarfélögin tilheyra hvort sínu landshlutasamtökum sveitarfélaga og teygja sig yfir tvö lögregluumdæmi. Þau eru þó í sama kjördæminu og sama heilbrigðisumdæminu. Sveitarstjórarnir telja þetta allt mál sem hægt verði að leysa.

67 blaða- og fréttamenn voru drepnir við störf sín frá fyrsta desember í fyrra til nóvemberloka, og yfir 500 eru í fangelsi vegna starfa sinna. Þetta kemur fram í samantekt alþjóðasamtakanna Blaðamenn án landamæra. Ísraelar drápu flesta fréttamenn, þriðja árið í röð, og hvergi eru fleiri fréttamenn í fangelsi en í Kína.

Spegillinn

Úr hlaðvarpinu

Spegillinn

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Spegillinn