Réttarhöldin í Þorlákshafnarmálinu og bæklunarlæknirinn sem hætti
Fjögurra daga aðalmeðferð í Þorlákshafnarmálinu svokallaða lauk í dag þegar saksóknari og verjendur sakborninga fóru yfir málflutning sinn. Fimm eru ákærð, þrír menn fyrir manndráp, frelsissviptingu, rán og fjárkúgun. Á ýmsu hefur gengið við rannsókn þessa umfangsmikla máls, til að mynda reyndi einn sakborningur að fá annan til að taka alla sökina á sig og skipta um lögmann á meðan þeir sátu í gæsluvarðhaldi. Sveitarfélögum landsins fer fækkandi og þau sem eftir standa verða um leið fjölmennari. Sameiningar sveitarfélaga þurfa þó alltaf að hljóta samþykki íbúa í kosningum og sums staðar á landinu halda fámennar sveitir fast í sjálfstæði sitt. Þriðja fámennasta sveitarfélag landsins er Skorradalshreppur, sem hefur ítrekað hafnað sameiningu við aðrar sveitir við Borgarfjörð. 194 sjúklingar fengu skilaboð í gegnum kerfi Landspítalans eftir að bæklunarlæknir í hlutastarfi fletti þeim upp í sjúkraskrá. Þetta voru allt sjúklingar að bíða eftir liðskiptaaðgerð og þeim boðið að koma í skoðun á stofu sem læknirinn starfaði á.
Fleiri þættir af Spegillinn
- Gengi krónunnar, Marco Rubio, skortur á íslenskum námsgögnum6. október 2026
- Ládeyða í kauphöllinni, mjólkurkvóti og ísbirnir5. október 2026
- Ládeyða í kauphöllinni, mjólkurkvóti og ísbirnir5. október 2026
- Skipulagsmál og byggingamarkaðurinn, ebólufaraldur í Kongó, þjóðhátíðardagur Kína2. október 2026
- Skipulagsmál og byggingamarkaðurinn, ebólufaraldur í Kongó, þjóðhátíðardagur Kína2. október 2026
- Skipulagsmál og byggingamarkaðurinn, ebólufaraldur í Kongó, þjóðhátíðardagur Kína2. október 2026