Kjörnir fulltrúar hreinsaðir út, stríð milli Pakistan og talíbana og ferðin til Kænugarðs

· Fréttir

Stjórnmálaferill fólks er að verða styttri og styttri og það færist í vöxt að flokkarnir leiti út fyrir sínar raðir. Stjórnmálaprófessor segir lítið hafa verið gert úr stjórnmálastarfi í þjóðmálaumræðunni.

Stjórnvöld í Pakistan lýstu í morgun formlega yfir stríði gegn nágrannaríkinu Afganistan og undirstrikuðu ásetning sinn með loftárásum á herbækistöðvar talibana í nokkrum stærstu borgum landsins, þar á meðal höfuðborginni Kabúl. Loftárásirnar voru viðbrögð Pakistana við samstilltum árásum afganskra hermanna á pakistanskar varðstöðvar í sex landamærahéruðum í gær. Þær árásir voru aftur viðbrögð talibanastjórnarinnar við loftárásum Pakistana á meintar bækistöðvar hryðjuverkasveita hinumegin landamæranna - og svo koll af kolli.

Leiðtogar Evrópusambandsins og níu þjóðríkja, þar á meðal Íslands, lögðu land undir fót á mánudaginn til að vera viðstödd atburði í höfuðborg Úkraínu á þriðjudag; daginn þegar rétt fjögur ár voru liðin frá því að allsherjarinnrás Rússa hófst. Björn Malmquist fréttamaður skráði þessa ferð í sögubækur samtímans.

Spegillinn

Úr hlaðvarpinu

Spegillinn

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Spegillinn