Íransstríðið og flugið, lokasprettur kosningabaráttunnar og ný leyniþjónusta Svía

· Fréttir

Flugfélög víða um heim eru farin að bregðast við ört hækkandi eldsneytisverði og búa sig undir að það hækki jafnvel enn frekar, dragist stríðsátökin við Persaflóa á langinn. Verðhækkunina má nefnilega fyrst og fremst rekja til árásarstríðs Bandaríkjamanna og Ísraela við Íran, og viðbrögð flugfélaganna eru meira og minna öll á einn veg: Fækkun flugferða, hækkun fargjalda og lækkun kostnaðar.

Kosningabarátta fyrir sveitarstjórnarkosningar 16. maí er komin á lokasprettinn, ellefu dagar til kosninga og má búast við að herðist á skrúfunni víða, rætt við Evu H. Önnudóttur prófessor um kosningarnar.

Svíar ætla að stofna nýja leyniþjónustu, til viðbótar við þær leyniþjónustustofnanir sem þeir reka nú þegar. Sænska utanríkisleyniþjónustan á að safna upplýsingum og njósna – og það strax frá og með næstu áramótum.

Spegillinn

Úr hlaðvarpinu

Spegillinn

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Spegillinn