Eldri atvinnuleytendur, hanta-veiran og skemmtiferðaskip

· Fréttir

Eldri atvinnuleytendur telja sig verða fyrir fordómum vegna aldurs en vinnumiðlanir og rannsakendur segjast ekki kannast við aldursfordóma. Atvinnumarkaðurinn sé flókinn og atvinnuleit krefjist vinnu.

Hanta-veiran dreifist allt öðru vísi en Covid og inflúensa, og smitast ekki nema við náið samneyti um lengri tíma. Þetta eru skilaboð Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar sem vill slá á ótta við heimsfaraldur.

Það gengur hægt að ná til baka skemmtiferðaskipum sem strikuðu Ísland út af siglingakortinu í kjölfar innviðaskatts sem lagður var á skipafélögin fyrir tveimur árum. Útlitið er þó skárra eftir að gjaldið var lækkað.

Spegillinn

Úr hlaðvarpinu

Spegillinn

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Spegillinn