Þjóðaratkvæðagreiðsla samþykkt - hvað nú? Og Ebóla virðir engin landamæri
Þingsályktunartillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný var samþykkt a Alþingi í dag. Það er því ljóst að atkvæðagreiðslan fer fram 29. ágúst. Þangað til eru þrír mánuðir - við hverju getum við búist á þeim tíma? Yfirveguðum umræðum um það sem greiða á atkvæði um eða áframhaldandi skotgrafahernaður um kosti og galla ESB og aðildar að því? Ævar Örn Jósepsson ræðir við Eirík Bergmann Einarsson stjórnmálafræðing og sérfræðing í málefnum Evrópu og Evrópusambandsins.
Í Ituri-héraði í norðausturhluta lýðstjórnarlýðveldisins Kongó mætast sjúkdómar og átök með hörmulegum afleiðingum, sagði Tedros Ghebreyesus forstöðumaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar í yfirlýsingu á X í gær. Engin lyf bíta á það afbrigði ebóluveirunnar sem nú geisar í nokkrum löndum Afríku, einkum Kongó. Anna Kristín Jónsdóttir fjallar um þetta og ræðir við Þórhildi Ólafsdóttur, sem býr með fjölskyldu sinni í Úganda.
Umsjón: Ævar Örn Jósespsson
Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Fleiri þættir af Spegillinn
- Gengi krónunnar, Marco Rubio, skortur á íslenskum námsgögnum6. október 2026
- Ládeyða í kauphöllinni, mjólkurkvóti og ísbirnir5. október 2026
- Ládeyða í kauphöllinni, mjólkurkvóti og ísbirnir5. október 2026
- Skipulagsmál og byggingamarkaðurinn, ebólufaraldur í Kongó, þjóðhátíðardagur Kína2. október 2026
- Skipulagsmál og byggingamarkaðurinn, ebólufaraldur í Kongó, þjóðhátíðardagur Kína2. október 2026
- Skipulagsmál og byggingamarkaðurinn, ebólufaraldur í Kongó, þjóðhátíðardagur Kína2. október 2026