Ábyrgð og skyldur ríkja í loftslagsmálum

· Fréttir

Ár er liðið frá því að Alþjóðadómstóllinn í Haag birti ráðgefandi álit á skyldum ríkja vegna loftslagsbreytinga. Eftir mikla gagnarýni og langan málflutning komst dómstóllinn að einróma niðurstöðu um að loftslagsmál hefðu áhrif á öllum sviðum mannlegrar tilveru, alstaðar í heiminum, og að öllum ríkjum bæri því skylda til þess að vernda loftslagið af fremsta megni. Bjarni Már Magnússon, doktor í lögfræði og sérfræðingur í þjóðarétti, rýndi í þetta mikla plagg fyrir loftslagsráð. Hann segir það umfangsmesta ráðgefandi álit í sögu dómstólsins, og marka tímamót í þróun þjóðaréttar á sviði loftslagsmála. Þá megi segja að það sé eins konar handbók fyrir fólk sem vill knýja yfirvöld í sínu landi til að gera betur í málaflokknum.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Spegillinn

Úr hlaðvarpinu

Spegillinn

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Spegillinn