Dagur íslenskrar náttúru

· Fréttir

Þessi þáttur er helgaður íslenskri náttúru, rétt eins og dagurinn allur, því dagur íslenskrar náttúru er haldinn hátíðlegur í dag, 16.september.

Af því tilefni afhenti umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti í Laugarneskirkju. Viðurkenninguna í ár hlaut Andri Snær Magnason, náttúruverndarsinni, rithöfundur og leikstjóri, sem um árabil hefur unnið ötullega að því að vekja athygli almennings jafnt sem ráðamanna á mikilvægi náttúru- og umhverfisverndar, loftslagsbreytingum og afleiðingum þeirra fyrir náttúruna jafnt sem samfélag manna. Rætt er við Andra Snæ í þættinum, og líka við Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur, formann Landverndar.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Jón Þór Helgason

Spegillinn

Úr hlaðvarpinu

Spegillinn

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Spegillinn