Kosningakerfið, skattbyrði millistéttarinnar, mállýskur skógarþrasta

· Fréttir

Tvær af þremur tillögum sem starfshópur um breytingar á kosningalögum leggur til, þurfa aðeins samþykki einfalds meirihluta á Alþingi. Aðeins þriðja tillagan, sem snýst um úthlutun jöfnunarsæta til kjördæmalista, og hefur áhrif á hringekjuna svokölluðu, þarf samþykki tveggja þriðju hluta á Alþingi. Ríkisstjórnin hefur því þingstyrk til að samþykkja meginbreytingarnar sem hópurinn leggur til. Rúnar Pálmason ræðir við Ólaf Þ. Harðarson.

Sérfræðingum Visku, stéttarfélags háskólamenntaðra, reiknast svo til, að heildarálögur á íslenskar fjölskyldur með það sem kalla má millitekjur - sem sagt hvorki láglauna- né hálaunafólk - séu nú þegar þær mestu sem tíðkast á Norðurlöndunum. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Vilhjálm Hilmarsson hagfræðing Visku.

Fáir syngja betur en skógarþrösturinn - en þeir, eins og flestir aðrir, syngja þó hver með sínu nefi eins og Hlynur Steinsson líffræðingur hefur komist að - og Ásrún Aldís Hreinsdóttir talaði við.

Umsjón: Rúnar Pálmason, tæknimaður Kormákur Marðarson.

Spegillinn

Úr hlaðvarpinu

Spegillinn

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Spegillinn