Ísland, losun og loftslagsmálin, samningur Grænlands, Danmerkur og Bandaríkjanna

· Fréttir

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra segir að gera þurfi miklu meira miklu hraðar, ef Ísland á að ná settu markmiði um 41% samdrátt á samfélagslosun fyrir árið 2030, og segir margt þegar hafa veið gert og fleira í bígerð til að auka líkur á því. Hins vegar er hann efins um að lögbundið markmið um kolefnishlutlaust Ísland fyrir 2040 sé raunhæft. Ekki hefur enn verið skilgreint hvað í þessu hugtaki felst, og það sé því í raun nánast marklaust. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Jóhann Pál.

Jens-Frederik Nielsen formanni landsstjórnar Grænlands og Múte B. Egede utanríkisráðherra landsins var vel fagnað þegar þeir komu til Nuuk frá New York í gærkvöld. Þeim var létt: Eftir ítrekaðar yfirlýsingar Donalds Trumps um að Grænland væri öryggi Bandaríkjanna nauðsynlegt og þau þyrftu að ráða því, var samningur milli ríkjanna þriggja um varnir og öryggi í höfn. En hvað felst í honum? Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Erling Erlingsson hernaðarsagnfræðing.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Spegillinn

Úr hlaðvarpinu

Spegillinn

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Spegillinn