Þungt regluverk, Silfrastaðakirkja og brottrekstur Nvidia-forstjóra
Samtök Iðnaðarins og framáfólk í þeirra röðum er á einu máli um að íslenskt regluverk sé of þungt í vöfum. Framkvæmdastjóri samtakanna segir það sláandi hversu stór hluti stjórnenda iðnfyrirtækja hefur lent í flækjum vegna regluverks, úskýrra reglna eða hægrar afgreiðslu stjjórnsýslunnar á erindum þeirra. Rúnar Pálmason fjallar um málið.
Það kostaði mikla vinnu og enn meiri þolinmæði að afla fjár til að koma hinni 130 ára Silfrastaðakirkju í gott horf. Það er ekki síst fyrir þolgæði og ákveðni Maríu Jóhannsdóttur, bónda í Kúskerpi í Skagafirði og formanns sóknarnefndar Silfrastaðakirkju að það tókst, og nú stendur kirkjan aftur á sínum stað, eins og ný. Ágúst Guðmundsson ræddi við Maríu og Björn Friðrik Svavarsson.
Jensen Huang forstjóri tæknirisans Nvidia hætti störfum síðdegis eftir mikið fár sem tengist einkalífi hans, framhjáhaldi og ástarsamböndum bæði við konu sem er sökuð um að njósna fyrir Kína og við starfsmann fyrirtækisins. Anna Kristín Jónasdóttir skoðar málið.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Mark Eldred.
Fleiri þættir af Spegillinn
- Gervigreind og fjarnám, vegurinn yfir Fjarðarheiði, ferðalag Voyager út í geim20. nóvember 2026
- Gervigreind og fjarnám, vegurinn yfir Fjarðarheiði, ferðalag Voyager út í geim20. nóvember 2026
- Rekstur OR, leiðtogafundur í Kína og för Voyager út í óravíddir alheimsins19. nóvember 2026
- Rekstur OR, leiðtogafundur í Kína og för Voyager út í óravíddir alheimsins19. nóvember 2026
- Útvistun flóttafólks og örlaga þeirra, námsmat á tímum gervigreindar17. nóvember 2026
- Síld, verðtrygging og sigurbogi5. nóvember 2026