#141. - Uppgjörið
Meirihluti kjósenda hafnaði því að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Að baki er löng og ströng barátta þar sem andstæðar fylkingar bárust á banaspjótum. En hver er staðan að átökum loknum?
Þessu hyggjast blaðamennirnir Andrea Sigurðardóttir og Andrés Magnússon svara í aukaþætti Spursmála sem fer í loftið klukkan 14:00. Þau hafa leitt fréttaumfjöllun Morgunblaðsins og mbl.is síðustu mánuði þar sem ljósi hefur verið varpað á kosti og galla mögulegrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu.
Í síðari hluta þáttarins mætir Óli Björn Kárason fyrrverandi ritstjóri og alþingismaður í þáttinn og ræðir nýjustu tíðindi af fjölmiðlamarkaði en í gær var tilkynnt um það að kvöldfréttatími Stöðvar 2 og síðast Sýnar hefði lagt upp laupana eftir 40 ára úthald.
Hvað þýðir þetta fyrir frjálsa fjölmiðlun í landinu og af hverju eiga fjölmiðlar jafn erfitt uppdráttar og raun ber vitni?
Fleiri þættir af Spursmál
- #144. - Vilja bera klæði á vopnin í ASÍ2. október 2026
- #143. - 1.685 milljarða pakki sem kíkja þarf í11. september 2026
- #142. - Ráðast þarf í enn frekari hagræðingu4. september 2026
- #140. - Titringur á lokametrum baráttunnar28. ágúst 2026
- #139. - Gangi Ísland inn, þá verður ekki aftur snúið24. ágúst 2026
- #138. - 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi21. ágúst 2026
