Spursmál er nýr og beinskeyttur umræðuþáttur á mbl.is Þar eru stóru mál samfélagsins krufin með afdráttarlausum hætti undir stjórn Stefáns Einars Stefánssonar sem fær til sín valinkunna gesti í settið alla föstudaga kl. 14. Fylgstu með lifandi, fjölbreyttri og kraftmikilli umræðu í Spursmálum á mbl.is.

#138. - 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi
Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands er gestur Stefáns Einars Stefánssonar í beinni útsendingu í Spursmálum. Þar mun hann gera upp baráttuna í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst, næstkomandi. Ólafur Ragnar hefur ekki farið leynt með afstöðu sína gegn Evrópusambandinu og hefur verið gagnrýninn á mögulega aðild Íslands að ESB. Segir hann slíkan könnunarleiðangur ótímabæran, enda sé Íslandi, líkt og Noregi og Sviss, betur borgið utan sambandsins og án upptöku á evru. Í þáttinn mæta einnig hagfræðingarnir Konráð Guðjónsson og Þorsteinn Þorgeirsson til að ræða kosti og galla mögulegrar ESB-aðildar fyrir íslenskt efnahagslíf, áhrif upptöku á evru og stöðu vinnumarkaðarins í því samhengi.

#137. - Böðull látinn laus og kjarasamningar í uppnámi
Á sama tíma og þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB stendur fyrir dyrum styttist í að kjarasamningar á almennum vinnumarkaði verði endurskoðaðir. Hvað ætlar verkalýðshreyfingin að gera? En atvinnurekendur? Þeim spurningum verður reynt eftir fremsta megni að svara í Spursmálum dagsins þar sem Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins og Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins mætast og fara yfir stöðuna. Ljóst er að verðbólgan mælist langt yfir því marki sem samið var um árið 2024. Í þættinum verður einnig rætt við Óskar Magnússon, lögmann, rithöfund og bónda á Sámstaðabakka í Fljótshlíð og Sigríði Á. Andersen, þingmann Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra. Þau verða meðal annars spurð út í nýjustu vendingar í máli áhafnarinnar á Bandero sem gerði óskunda inni í íslenskri lögsögu fyrir skemmstu og einnig verður vöngum velt yfir því hvernig það gat komið til að böðullinn Angjelin Sterkaj sem varð manni að bana með hrottafengnum hætti í Rauðagerði árið 2021 er laus úr íslensku fangelsi og farinn til heimalands síns, Albaníu.

#136. - Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur?
Engin þjóð hefur stofnað til umsóknar að Evrópusambandinu með þeim hætti sem íslensk stjórnvöld vilja gera nú. Hvað ætlast forystumenn ríkisstjórnarinnar fyrir í málinu?Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og alþingismaður hefur fjallað ítarlega um yfirvofandi umsóknarferli Íslands og ræðir það í Spursmálum dagsins. Hann var meðal annars formaður utanríkismálanefndar Alþingis þegar Íslendingar samþykktu EES-samninginn fyrir sína parta.Auk Björns mæta stjórnendur hlaðvarpsins, Komið gott, á vettvang og ræða fréttir vikunnar. Það eru þær Kristín Gunnarsdóttir og Ólöf Skaftadóttir. Þar verður Evrópuumræðan sannarlega fyrirferðarmikil en sennilega munu hvalveiðar og átök við Íslandsstrendur einnig bera á góma.

#135. - Hverju búast menn við í aðildarsamningi?
Hvers væntir Já til að sjá-hreyfingin í aðildarsamningi við Evrópusambandið þegar hann liggur fyrir? Þeirri spurningu verður beint að Jónasi Hagan, fjárfesti og einum stofnenda hreyfingarinnar í Spursmálum dagsins.Þar mætir hann Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi en hún hefur ákveðnar hugmyndir um það hvað Evrópusambandið muni leggja upp með þegar kemur að stærstu auðlind þjóðarinnar í kringum landið.Þá mun Andrés Magnússon, blaðamaður og fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu mæta til leiks og ræða fréttir vikunnar. Þar verður sjónum meðal annars beint að hlutverki fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu sem þeirrar sem fram fer þann 29. ágúst. Eiga fjölmiðlar að vera hlutlausir í umfjöllun sinni?

#134. - Hart tekist á um vexti og atvinnuleysi
Dagur B. Eggertsson, alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri segir gríðarlegan velferðarábata felast í því að taka upp evru á Íslandi. Vitnar hann meðal annars til 12 ára gamallar skýrslu í því efni. Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs og hagfræðingur segir skýrsluna úrelta. Þau takast á um efnið og hvaða tækifæri felist mögulega í því að Ísland gangi í Evrópusambandið í aukaþætti Spursmála sem sendur er út á mbl.is klukkan 10:00 í dag. Unnin að beiðni ASÍ og fleiri 2014. Skýrslan sem um ræðir og varð umtalsefni eftir að Dagur birti grein á visir.is þar sem hann vitnaði til hluta niðurstaðna hennar, var unnin af Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands árið 2014 að beiðni Alþýðusambands Íslands og nokkurra atvinnurekendasamtaka. Þar eru kostir upptöku evru tíundaðir, meðal annars í ljósi þess gríðarlega verkefnis sem stóð fyrir dyrum um að koma Íslandi út úr fjármagnshöftum. Stjórnvöld Íslands á árunum 2009-2013 höfðu heykst á því verkefni og það var ekki fyrr en með ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sem lausn fékk á þeim málum með tröllauknum samningum við kröfuhafa föllnu bankanna. Ásdís Kristjánsdóttir brást við skrifum Dags og sagði stöðu efnahags- og peningamála allt aðra á Íslandi í dag en árið 2014. Grundvallarbreytingar hefðu verið gerðar á kerfinu sem hafi komið Íslandi á beinu brautina. Hún varar við inngöngu í ESB og upptöku evru og segir að með því missi Ísland mikilvægt hagstjórnartæki úr höndum.

#133. - Hefði Kerecis orðið til innan Evrópusambandsins?
Guðmundur Fertram Sigurjónsson er meðal gesta Spursmála þennan föstudaginn og ræðir þar af hverju hann leggst gegn aðildarviðræðum við ESB en hann flutti ræðu á fundi samtakanna Áfram Ísland sem haldinn var á Selfossi á miðvikudaginn síðastliðinn.Hann býr yfir alþjóðlegri reynslu og hefur starfað við uppbyggingu fyrirtækja í Bandaríkjunum, ýmsum ríkjum Evrópu og á Nýja-Sjálandi.Hver staðan á Kerecis?Í þættinum verður hann einnig spurður út í stöðuna á Kerecis sem rekur framleiðslustarfsemi sína á Ísafirði en fyrirtækið var selt til danska lækningavöruframleiðandans Coloplast fyrir þremur árum á nærri 180 milljarða króna.Íslenskt atvinnulíf, sjávarútvegur og ESBÍ þættinum verður einnig rætt við þá Hjálmar Vilhjálmsson sem situr í stjórn Já til að sjá og Hermann Guðmundsson sem er meðal stofnfélaga Áfram Ísland. Hjálmar er framkvæmdastjóri hjá útgerðarfélaginu Brimi og verður hann meðal annars spurður út í álitamál tengd íslenskum sjávarútvegi ef Ísland gengur í ESB. Hermann er forstjóri Kemi. Hvorugur þeirra kemur þó til samtals um þessi mál sem fulltrúi fyrirtækisins sem þeir starfa hjá heldur sem einstaklingar sem vilja beita sér fyrir málefnalegri umræðu um mögulega aðild Íslands að ESB.

#132. - Á ríkið eitt að selja fólki áfengi
Er ríkisvaldið eini aðilinn sem getur með viðunandi staðið að áfengissölu hér á landi? Er það ógn við lýðheilsu og heilbrigðiskerfið ef einkaaðilum er falið það verk? Hér mætast þeir Kári Stefánsson, læknir og stofnandi Íslenskrar erfðagreiningar og Arnar Sigurðsson stofnandi og eigandi áfengisverslunarinnar Santé.

#131. - Kjaftæði um matvæla- og húsnæðisverð
Er dýrt að kaupa í matinn á Íslandi og er húsnæðismarkaðurinn ókleifari múr fyrir ungt fólk hér á landi en annars staðar. Hagfræðingurinn Konráð S. Guðjónsson verður knúinn svara um það í Spursmálum. Hann hefur að undanförnu fjallað mikið um matvælaverð á Íslandi og hvernig markaðurinn hér á landi er í samanburði við nágrannaríkin. Í Spursmálum í dag hyggst hann einnig birta áhugaverðan samanburð á fasteignamarkaðnum á Íslandi og í Danmörku. Í fréttum vikunnar er rætt við íþróttafréttamanninn Eddu Sif Pálsdóttur sem staðið hefur í ströngu meðan á Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu hefur staðið og Jón Kristin Einarsson sagnfræðing sem þessa dagana fræðir íslensku þjóðina um sögu lands og þjóðar. Það gerir hann á nýstárlegan hátt í samtölum við helstu fræðimenn landsins á þessu sviði. Þau munu þó ekki aðeins ræða HM og sagnfræði heldur einnig rýna í aðrar stórar fréttir vikunnar.

#130. - Innflutningur á glæpaklíkum og spurningin um ESB
Margt hefur dregið til tíðinda í íslensku samfélagi í vikunni sem nú er að líða. Á vettvangi Spursmála verður drepið niður í umræðu um nokkur helstu málin, meðal annars stórt fíkniefnasmygl sem nú tengist beint veitingu ríkisborgararétts til albansks manns árið 2015. Hann er nú Íslendingur en fyrrgreint ár fóru ákveðnir fjölmiðlar og alþingismenn hamförum vegna ákvörðunar útlendingastofnunar um að vísa albanskri fjölskyldu úr landi. Þingið kiknaði í hnjánum og gestrisni þess hefur nú verið endurgoldin með fyrrnefndum hætti þar sem hópur glæpamanna vinnur að því hörðum höndum að dæla ólöglegum fíkniefnum inn í landið. Fréttir vikunnar og ESB-málin í forgrunni Þetta mál og fleiri ræða þeir Ragnar Sigurðsson, formaður bæjarráðs Fjarðarbyggðar og Ásmundur Friðriksson, fyrrverandi alþingismaður og bæjarstjóri og rithöfundur með meiru þar sem farið er yfir fréttir vikunnar. Ásmundur sat á Alþingi þegar fyrrnefnd ákvörðun var tekin. Í síðari hluta þáttarins er rætt við dr. Björn Zoëga, forstjóra King Faisal sjúkrahússins í Sádi-Arabíu en hann kom fram á upphafsfundi Áfram Ísland á mánudaginn þar sem hann færði rök fyrir því af hverju Íslendingar eigi að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst næstkomandi.

#129. - Ungt fólk, stórar spurningar og harðnandi barátta
Baráttan um framtíð Íslands gagnvart Evrópusambandinu færist nú á nýtt stig og í Spursmálum vikunnar er tekist á við stóru spurningarnar sem blasa við þjóðinni fyrir atkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Í þættinum er rætt um upplýsingagjöf stjórnvalda, stöðu krónunnar, áhrif mögulegrar aðildar á atvinnulíf og heimili landsmanna og ekki síst það hvernig ungt fólk hyggst láta til sín taka í einni stærstu pólitísku umræðu síðari ára. Farið er yfir fréttir vikunnar, þar á meðal hvalveiðar, stöðu Landhelgisgæslunnar, menntamál og þá umræðu sem nú stendur um einkunnagjöf og samræmt mat í skólakerfinu. Gestir þáttarins koma úr ólíkum áttum og draga fram mismunandi sjónarmið, en sameiginlegt er að umræðan er beinskeytt, lifandi og á köflum snörp. Í seinni hluta þáttarins mætast fulltrúar ungs fólks sitthvoru megin í ESB-deilunni og ræða hvað raunverulega er undir þegar þjóðin gengur að kjörborðinu. Gestir þáttarins eru Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri Kötlu DMI og bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akranesi, og Einar Jóhannes Guðnason, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Kópavogi, sem fara yfir fréttir vikunnar með Stefáni Einari Stefánssyni. Í síðari hluta þáttarins mæta Júlíus Viggó Ólafsson, formaður Ung gegn ESB-aðild, og Óðinn Freyr Baldursson, formaður Ungra Evrópusinna.


